Mánaðaráskrift
24.990 kr./mánuð
Fyrir hverja staðsetningu
Mánaðaráskrift veitir fullan aðgang að Torginu gegn mánaðargjaldi upp á 24.990 kr.
Markmið Torgsins er að selja vörur fyrr, á minni afslætti, frekar en seinna á meiri afslætti.

Fyrirtæki sitja oft uppi með vörur sem seljast of hægt og safnast upp á lager. Eftir því sem tíminn líður þarf oft að auka afsláttinn aftur og aftur til að losa birgðirnar, þar til varan selst að lokum á mun lægra verði en upphaflega var stefnt að. Þetta bindur fjármagn, hægir á veltu og dregur úr verðmæti birgðanna.
Þetta leysum við með Torginu.
Torgið er stafrænt torg sem safnar saman vörum á tilboði, afslætti eða útsölu á einum stað. Með samþykki notenda lærir Torgið af því sem þeir skoða og vista og sýnir þeim þau tilboð sem líklegust eru til að höfða til þeirra. Þannig hjálpar Torgið fyrirtækjum að hámarka sýnileika afsláttarvara, ná betur til réttra viðskiptavina og auka líkurnar á að vörur seljist hraðar.
Fyrirtæki tengja lager- eða vefverslunarkerfi sitt við Torgið í gegnum API. Þegar vara fer á afslátt í kerfi fyrirtækisins getur hún birst sjálfkrafa á Torginu í gegnum API-ið, eða fyrirtækið skráir hana í stjórnborðinu. Notendur finna hana í leit og flokkum á Torginu, og hún getur birst þeim sem líklegastir eru til að hafa áhuga á henni.
Ef notanda líst vel á vöruna smellir hann á hlekk og fer áfram á vefsíðu fyrirtækisins, þar sem kaupin fara fram. Fyrirtæki geta síðan fylgst með sýnileika, umferð og árangri í stjórnborði Torgsins.
Torgið rukkar fyrir hverja staðsetningu og áskriftin felur í sér aðgang að stjórnborði, API-tengingu við lager- eða vefverslunarkerfi, birtingu tilboða og ótakmarkaðan fjölda virkra tilboða á vettvangnum.
24.990 kr./mánuð
Fyrir hverja staðsetningu
Mánaðaráskrift veitir fullan aðgang að Torginu gegn mánaðargjaldi upp á 24.990 kr.
249.900 kr./ári
Fyrir hverja staðsetningu
Ársáskrift veitir fullan aðgang að Torginu gegn einni árlegri greiðslu upp á 249.900 kr.
Verð eftir umfangi
Sérsniðin áskrift er fyrir stærri fyrirtæki með stóran fjölda staðsetninga eða sérstakar þarfir, þar sem verð og fyrirkomulag er ákveðið sérstaklega út frá umfangi samstarfsins.
Skrifaðu okkur og við opnum aðgang fyrir fyrirtækið þitt.